Bygg (Hordeum Vulgare) er einær grastegund og er fjórða mest ræktaða korntegundin í heimi og sú mest ræktaða hér á landi. Á undanförnum árum hefur kornrækt á Íslandi aukist og nemur nú um 3.000 hekturum á ári. Megnið af uppskeru byggs á Íslandi fer til fóðurframleiðslu fyrir búfénað, en einnig er hluti þess nýttur í framleiðslu á malti sem notað er meðal annars við bjórgerð. Bygg skiptist í tvær undirtegundir eftir uppbyggingu axanna; tvíraða bygg og sexraða bygg. Munurinn liggur í fjölda kornraða á axinu. Þessi munur hefur áhrif á ýmsa ræktunareiginleika.

Sexraða bygg er alla jafnan meira fljótþroska en tvíraða bygg, auk þess sem það gefur hærri uppskeru við hagstæð skilyrði. Hins vegar er sexraða byggið viðkvæmara fyrir ytri áföllum, líkt og vindi. Þéttleiki axanna og fljótur þroski eykur líkur á hruni úr axi eða að kornin losni úr axinu áður en byggið er uppskorið. Hvort tveggja getur leitt til verulegs uppskerutaps. Tvíraða bygg er veðurþolnara og þolir betur haustlægðir og hið óstöðuga veðurfar sem algengt er á Íslandi. Vindþolið tengist meðal annars strástyrk og minni þyngd axa, sem gerir plöntuna stöðugri. Tvíraða bygg hefur sömuleiðis tilhneigingu til að mynda fleiri hliðarsprota, sem skilar sér í meiri gróðurmassa og þar af leiðandi meiri hálmframleiðslu.

Vegna þessara eiginleika þarf að vanda val á byggyrkjum eftir ræktunarskilyrðum og veðurfari, hvort sem áhersla er lögð á uppskeru eða gæði.
