Future Food Security in the Nordic-Baltic Region: Merging Past, Present and Future (NorBalFoodSec)
LbhÍ er þátttakandi í þessu Norræna samstarfsverkefni sem er leitt af Alex Lenkoski við Norsk Regnesentral. Verkefnið hefur að markmiði að búa til gagnagrunn sem sameinar uppskerugögn um bygg frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum og veðurfarsgögn. LbhÍ leggur til uppskerugögn úr byggtilraunum síðustu áratuga. Í kjölfarið verða búin til tölfræðitól sem hægt verður að nýta til að kanna áhrif veðurfars á uppskeru og spá fyrir um uppskeru í framtíðinni. Verkefnið er stutt af Markáætlun um samfélagslegar áskoranir.
https://nva.sikt.no/projects/2754264
Þátttakendur LbhÍ
Anna Guðrún Þórðardóttir
Egill Gautason
Hrannar Smári Hilmarsson

