06-72:1 Smyrill

Ættartala: Olsok x Óþekkt (sennilega Lavrans)
Smyrill er íslenskt sexraða yrki, þekkt fyrir góða uppskeru og fljótan þroska. Þrátt fyrir það skríður hann að meðaltali seint (á 79. degi eftir sáningu), sem er sjö dögum síðar en Vertti, þremur dögum seinna en Judit og einu degi seinna en Brage. Hann nær samt fyrr fullum þroska sem skilar sér í hærra þurrefnishlutfalli við skurð en hjá flestum öðrum sexraða yrkjum. Smyrill er meðal hár (~73 cm), stendur vel og brotnar lítið. Hann er þó viðkvæmur fyrir vindi og hrun úr axi getur verið áberandi, sérstaklega vegna þess hve fljótt hann þroskast.

Svipfarseiginleikar Smyrils samanborið við þekkt erlend yrki

Uppskerueiginleikar Smyrils samanborið við þekkt erlend yrki
| Smyrill | Judit | Brage | Vertti | |
|---|---|---|---|---|
| Uppskera | 100% | 91% | 96% | 87% |
| Þurrefni | 100% | 93% | 95% | 97% |
| Rúmþyngd | 100% | 96% | 101% | 100% |
| Þúsundkornavigt | 100% | 96% | 92% | 107% |
