Smáreitatilraunir

Smáreitir eru tilraunareitir sem eru 1 m2 að stærð eða minni og eru í okkar tilfelli notaðir á fyrstu stigum kynbótastarfs til að fanga mikinn erfðabreytileika á litlu svæði. Sáning í þessa reiti fer fram með sérhæfðri smáreitasáðvél sem gerir kleift að sá mörg hundruð reitum á mjög afmörkuðu svæði með mikilli nákvæmni. Þetta fyrirkomulag gerir kleift að prófa fjölda lína eða meðferðarliði samtímis og með lágmarks landnýtingu.

Markmið smáreitatilrauna er ekki að mæla fulla uppskeru, heldur að safna upplýsingum um breytileika í eiginleikum á borð við vaxtarlag, skriðtíma og þroska. Slíkar tilraunir eru sérstaklega mikilvægar á frumstigum kynbótaverkefna, þar sem fjöldi arfgerða eða afkvæmi víxlana er mikill og nauðsynlegt er að draga úr fjölda einstaklinga með því að velja bestu línurnar áður en farið er í frekari prófanir með stærri reitum.

Smáreitir gegna því lykilhlutverki í að hámarka skilvirkni í kynbótastarfi. Þeir gera kynbótamönnum kleift að meta hratt og örugglega fjölbreytileika í efniviðnum áður en valdar arfgerðir fara í ítarlegri tilraunir.