Starfsfólk tengt kornrannsóknum

Anna Guðrún Þórðardóttir

Doktorsnemi

Símanúmer: 841-6874

agth@lbhi.is

Doktorsverkefnið mitt ber titilinn “Erfðaleg aðlögun byggs að krefjandi umhverfisaðstæðum (GABAR)”. Verkefnið þróar erfðamengjaúrval (e. Genomic Selection) með gögnum úr íslenskum yrkjatilraunum, með það að markmiði að auka öryggi úrvals byggyrkja til frekari ræktunar við íslenskar aðstæður. Ég hef lokið BSc og MSc gráðu í Búvísindum frá LbhÍ, með skiptinámsári við Aarhus University í Danmörku, og vinn nú að doktorsgráðu í Búvísindum við LbhÍ.

Egill Gunnarsson

Umsjónarmaður hveititilrauna

Símanúmer: 848-2215

egill@lbhi.is

Ég hef umsjón með hveititilraunum sem er hluti af kynbótaverkefninu Völu. Starfið felur m.a. annars í sér að leggja út tilraunir á kynbótaefnivið í tveggja þrepa kynbótaverkefni, búa til kynbótaefnivið og bera ábyrgð á svipgerðargreiningum. Ég er búfræðingur frá Lbhí og lauk BS prófi í búvísindum frá Lbhí 2012 og skilaði lokaverkefni um „Áhrif og samspil sáðmagns og áburðarmagns á strástyrk, kornþroska og uppskeru í byggi“. Ég starfaði sem bústjóri Hvanneyrarbúsins ehf frá 2015-2025 sem er  kennslu- og rannsóknarbú í eigu LbhÍ.

Egill Gautason

Lektor

Símanúmer 843-5333

egillgauta@lbhi.is

Ég starfa við rannsóknir og kennslu við Landbúnaðarháskólann. Ég hef BSc gráðu í búvísindum frá LbhÍ, og MSc og PhD gráður frá Árósaháskóla. Doktorsritgerð mín fjallaði um kynbætur íslenskra mjólkurkúa. Ég hef síðustu ár komið að kynbóta- og erfðafræðirannsóknum í byggi og hveiti. Ég er ráðgjafi í erfðamengjaúrvali í kynbótaverkefninu Völu.

Gunnhildur Gísladóttir

Aðstoðarmaður í Rannsóknum

Símanúmer: 661-3528

gunnhildurgisla@lbhi.is

Ég starfa við rannsóknir og kennslu innan LbhÍ í umhverfisfræðum sem tengjast búfjárrækt og jarðrækt. Ég er menntuð sem búfræðingur og lauk BSc prófi í búvísindum frá LbhÍ árið 2023 þar sem lokaverkefni mitt var að þróa nýtt kynbótamat fyrir Íslenska byggkynbótaverkefnið. Ég stunda núna MSc nám í búvísindum við LbhÍ þar sem lokaverkefni mitt snýr að því að rannsaka uppruna íslenska byggsins og erfðafræðilega þróun í aðlögun byggs að íslenskum umhverfisaðstæðum.

Helga Rún Jóhannsdóttir

Aðstoðarmaður í Rannsóknum

Símanúmer: 896 0012

helgarun@lbhi.is

Starfsemi mín snýr að úrvinnslu hafratilrauna sem eru framkvæmdar við jarðræktarmiðstöð LbhÍ, svipgerðagreiningum, uppskerumælingum og úrvinnslueiginleikum hafra. Ég er menntuð sem bakari, búfræðingur og með BSc gráðu í Búvísindum.

Hrannar Smári Hilmarsson

Tilraunastjóri

Símanúmer:

hrannar@lbhi.is

Hrannar Smári Hilmarsson er tilraunastjóri í jarðrækt við Landbúnaðarháskóla Íslands. Hann er verkefnastjóri plöntukynbótaverkefnisins Völu. Hrannar er erfðafræðingur en hefur einnig starfað við jarðræktarrannsóknir undanfarin ár.

 

Sunna Skeggjadóttir

Aðstoðarmaður í Rannsóknum

Símanúmer: 863 9983

sunnas@lbhi.is

Rannsóknarstarfsemi mín beinist að plöntukynbótaverkefninu Völu, þar sem ég ber ábyrgð á framkvæmd svipgerðagreininga á innlendum byggtilraunum. Ég er menntuð sem búfræðingur og með BSc gráðu í Búvísindum. Vorið 2026 lauk ég Msc gráðu í Búvísindum þar sem hluti námsins fór fram í skiptinámi við Lífvísindaháskólanum að Ási í Noregi (Norwegian University of Life Science). Lokaverkefni mitt fjallaði um skipta áburðargjöf (e. split fertilization) í byggi. Markmiðið var að meta hvernig það að skipta áburðinum hafi áhrif á uppskeru og gæði byggs ásamt niturnýtingu samanborið við að bera einungis á við sáningu.