Ættartala: Pernilla x Skegla

Kría er íslenskt tvíraða yrki. Hún er þekkt fyrir að vera örugg í ræktun óháð árferði. Hún gefur stöðuga uppskeru um allt land ár hvert. Kría er miðlungs fljótþroska og skríður alla jafnan á 78. degi eftir sáningu sem er fyrr en Filippa og nokkrum dögum fyrr en Arild og Anneli. Kría er alla jafnan með meiri rúmþyngd en lægri þúsundkornavigt en önnur tvíraða yrki við íslenskar aðstæður. Hún er nokkuð lág (~ 65 cm) miðað við önnur tvíraða yrki en er gjörn á að leggjast. Kría brotnar afar sjaldan og heldur fast í kornin. 

Kría

Kría Anneli Arild Filippa
Uppskera 100% 106% 104% 91%
Þurrefni 100% 91% 91% 93%
Rúmþyngd 100% 94% 95% 97%
Þúsundkornavigt 100% 104% 103% 113%