Hafrar (Avena sativa) er einær grastegund, ein af mest ræktuðu korntegundum í heimi og eru næst mest ræktaða korntegundin á Íslandi.Í gegnum tíðina hafa hafrar aðallega verið ræktaðir á Íslandi sem grænfóður en ræktun til kornþroska hefur aukist á undanförnum árum. Sú uppskera hefur að miklu leyti verið nýtt
til manneldis.  Þegar hafrar eru nýttir sem grænfóður er plantan slegin áður en hún nær fullum þroska og nýtt í heild sinni til fóðurs. Hægt er að nýta sömu yrki sem grænfóður og til kornþroska eftir vaxtarskilyrðum og hentugleika ræktenda. Þá er grænfóður höfrum sáð á sama tíma og grasfræði en höfrum til kornþroska sáð á sama tíma og byggi eða eins snemma og aðstæður leyfa. Mælt er með að nota snemmþroska yrki til kornþroska. Mögulegt er að rækta hafra við fjölbreyttar aðstæður á Íslandi en í tilraunum hefur komið best út að rækta hafra til kornþroska á sendnum jarðvegi eða melajarðvegi. Hafrar hafa ekki verið kynbættir fyrir íslenskar aðstæður og því eru ekki til nein íslensk yrki.