Markmið dreifðra yrkjatilrauna er að meta og bera saman frammistöðu mismunandi yrkja og arfgerða í fjölbreyttum aðstæðum, það er ólíkum veðurfars- og jarðvegsskilyrðum. Með því að framkvæma slíkar tilraunir á mörgum stöðum og yfir lengri tíma er dýrmætum upplýsingum safnað um uppskerumagn, sjúkdóma- og meindýraþol, þol gagnvart veðurálagi.
Yrkjatilraunir eru kerfisbundnar uppskerutilraunir sem eru yfirleitt 5-10m2 að stærð og hannaðar með það að markmiði að tryggja samanburðarhæfar niðurstöður. Í þessum reitum er sáð bæði þeim yrkjum sem þegar eru fáanleg á markaði og íslenskum línum sem eru komnar á síðari stig í kynbótaferlinu og hafa sýnt fram á góða eiginleika.
Þessar niðurstöður nýtast síðan við val á hentugum yrkjum fyrir tiltekin svæði og við þróun nýrra og betri arfgerða.

