Áburðartilraunir
Markmið áburðartilrauna er að greina áhrif mismunandi áburðargjafar á frammistöðu plöntutegunda, með það að leiðarljósi að hámarka nýtingu næringarefna og stuðla að sjálfbærri framleiðslu. Í slíkum tilraunum er sérstaklega lögð áhersla á þrjú megin næringarefnin, köfnunarefni (N), fosfór (P) og kalí (K), en þau gegna lykilhlutverki í vexti og þroska plantna. Rannsakað er hvernig magn, hlutföll, tegund áburðar, tímasetning og aðferðir við áburðargjöf hafa áhrif á magn og gæði uppskeru.
Til að tryggja að niðurstöður nýtist við mismunandi aðstæður eru tilraunir oft framkvæmdar á fleiri stöðum með ólíka jarðvegseiginleika og loftslagsskilyrði. Þetta gerir kleift að greina samspil áburðargjafar við mismunandi aðstæður.
Niðurstöður áburðartilrauna veita gagnreyndar upplýsingar sem hægt er að nota til að hagræða áburðarnotkun fyrir tilteknar plöntutegundir og jarðvegsaðstæður. Með því að finna hagkvæmustu og umhverfisvænustu leiðirnar er hægt að draga úr kostnaði og minnka áhættu á næringarefnatapi með útskolun, og þar með minnka mengun grunnvatns og yfirborðsvatns.
Dæmi um áburðartilraunir sem hafa verið framkvæmdar í korni undanfarin ár eru;
- Tilraunir með vaxandi köfnunarefnismagni í byggi
- Áburðartilraunir á höfrum til þroska
- Skipt áburðargjöf í byggi
